Stytting vinnuvikunnar

437
Laugardagsfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs 10. nóvember kl. 10:00, í sal Sjálfstæðisfélags Kópavogs, Hlíðasmára 19.
 
Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir mun kynna tilraunaverkefnið um styttingu vinnutíma hjá ríkinu og fjalla um niðurstöður mælinga sem unnar hafa verið í tengslum við verkefnið.
 
Hún starfar sjálfstætt fyrir velferðarráðuneytið og hefur umsjón með tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma hjá ríkinu. Ása hefur lokið BA prófi í sálfræði, MSc. námi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og MA námi í starfsendurhæfingarráðgjöf við University of Maryland, College Park í Bandaríkjunum.
 
Um árabil hefur Ása unnið að mannauðsmálum, vinnuvernd, starfsendurhæfingu, verkefnastjórn, greiningum og ráðgjöf.
 
Kaffi og bakkelsi á staðnum að vana.
 
Allir velkomnir.
 
Kveðja,
Sjálfstæðisfélag Kópavogs