Kjartan Sigurgeirsson
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Kjartan Sigurgeirsson æviágrip:
Fjölskylduhagir:
Kjartan er fæddur í Reykjavík 24. desember 1948, foreldar Hrafnhildur K. Thors og Sigurgeir Jónsson fyrrum bæjarfógeti og hæstaréttardómari, en hann er látinn.
Kjartan er kvæntur Þórdísi Guðrúnu Bjarnadóttur viðurkenndum bókara f. 1950 og eiga þau 3 börn, Margréti lögfræðing f. 1970, Kjartan Þór tölvunarfræðing f. 1975 og Bjarna grafískan hönnuð f. 1976.
Búseta:
Kjartan fluttist í Kópavog 1956 og ólst þar upp, bjó um skeið í Reykjavík en er nú fluttur aftur í Kópavog og býr við Breiðahvarf.
Nám:
Kjartan útskrifaðist frá Verzlunarskóla Íslands vorið 1969 og frá Lögregluskóla ríkisins 1973 hann hefur sótt ýmis námskeið bæði hérlendis og erlendis vegna starfa sinna hjá Reiknistofu bankanna.
Starfsferill:
Kjartan hefur unnið hjá Reiknistofu bankanna frá 1. febrúar 1977 við margvísleg störf, svo sem kerfissetningu og forritun, auk netrekstrar, aðgangsstýringa og fleira.
Kjartan starfaði hjá lögreglunni í Kópavogi frá 1970 til 1977, þar áður um 11 mánaða skeið hjá Skattstofu Reykjanessumdæmis við skattendurskoðun.
Félagsstörf:
Kjartan er í stjórn siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi, var formaður þar í nokkur ár, er stjórnarmaður í SSF Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja og hefur verið formaður SRB Starfsmannafélags Reiknistofu bankanna í 6 ár og gengdi áður um nokkurra ára skeið stöðu trúnaðarmanns.
Áhugamál:
Kjartan stundaði kjölbátasiglingar um 10 ára skeið og varð meðal annars í áhöfn sem náði því að verða Íslandsmeistarar eitt árið. Kjartan hefur áhuga á bílum og umferð, útivist og ferðalögum. Hann er félagi í Fornbílaklúbb Íslands. Kjartan hefur áhuga á umhverfi sínu og vill leggja sitt af mörkum til að bæjarbúum liði vel í Kópavogi og að þar geti þeir verið öruggir um sig og fjölskyldur sínar.
Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík 2.júní 1979, er í sambúð með Davíð Bergþóri Sverrissyni, og á eina dóttur, Andreu Thelmu sem er 6 ára. Fluttist í Kópavoginn árið 2003, bjó áður í Garðabæ, sleit bernskuskónum í Stykkishólmi frá þriggja til tólf ára aldurs. Foreldrar Jóhönnu eru Sigurður Skúli Bárðarson og Jóhanna Hauksdóttir. Jóhanna stundaði nám við Menntaskólann í Kópavogi og Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. Hún hefur nýlokið b.s. gráðu í Viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst. Hún stefnir á mastersnám.
Jóhanna hefur ekki áður gefið kost á sér til stjórnmálastarfa. Hún er því nýgræðingur í þeim efnum . Með námi og í námshléum starfaði hún aðallega við ferðaþjónustu meðal annars í Austurríki, hótel Stykkishólmi og hótel Búðum.

Sigurjón Sigurðsson
Ég er fædd í Reykjavík þann 14. maí 1971. Ég hef alið manninn á ýmsum stöðum. Ég bjó meðal annars á Blönduósi á mínum yngri árum sem og í Kanada. Ég flutti í Kópavoginn, nánar tiltekið í Salahverfið, með fjölskyldunni minni í apríl 2001.
Benedikt fæddist í Reykjavík 1987 og bjó þar fram að aldamótum, þegar hann flutti á Digranesheiði. Benedikt er sonur Hallgríms Ólafssonar, viðskiptafræðings og ræðismanns Króatíu, og Brynju Sigurmundsdóttur. Eftir að hafa klárað Digranesskóla og síðar stúdentsprófið í Menntaskólanum við Hamrahlíð fór Benedikt í lögfræði í Háskóla Íslands, og er nú á þriðja ári. Með skóla hefur Benedikt unnið ýmis störf, nú síðast hjá slitastjórn Kaupþings.


