Haraldur Benediktsson alþingismaður á streymisfundi laugardaginn 17. október!

499

Haraldur Benediktsson alþingismaður Norðvesturkjördæmis og varaformaður fjárlaganefndar verður í beinni á næsta laugardagsfundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs. Mikið mæðir á fjárlaganefnd þessa dagana og mun Haraldur fara yfir málin, ásamt öðrum aðkallandi verkefnum.

Fundinum verður streymt á Facebook laugardaginn 17. október kl. 10:00.

Við hvetjum félagsmenn til að senda inn fyrirspurnir fyrir fundinn á netfangið xdkop@xdkop.is , einnig verður tekið við fyrirspurnum meðan á fundinum stendur.

Hittumst á netinu!
Stjórn Sjálfsstæðisfélags Kópavogs