Ármann Kr. Ólafsson

635

Ármann Kr. Ólafsson er bæjarstjóri í Kópavogi, oddviti Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi alþingismaður í Suðvesturkjördæmi.

Eiginkona hans er Hulda Guðrún Pálsdóttir klæðskerameistari og kennari frá KHÍ og eiga þau tvö börn, Hermann og Höllu.

Ármann er fæddur á Akureyri, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og tók virkan þátt í félagslífi skólans, var m.a. ritstjóri skólablaðs M.A. Áður en Ármann hóf nám í M.A. lauk hann námi í grunndeild rafiðna við Iðnskólann á Akureyri. Ármann er stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands, en hluti af háskólanáminu var markaðsfræði sem hann nam við University of West Florida. Samhliða háskólanáminu lauk Ármann einkaflugmannsprófi en áður hafði hann fengið réttindi til að fljúga svifflugu. Að loknu námi stofnaði Ármann auglýsingastofuna ENNEMM ehf. og var framkvæmdastjóri hennar. Árið 2011 og þar til hann tók við stöðu bæjarstjóra stýrði Ármann eigin fyrirtæki Seltu ehf., sem flutti út sjávarafurðir og framleiddi fisk inn á íslenskar matvöruverslanir.

Ármann hefur gegnt starfi aðstoðarmanns ráðherra í þremur ráðuneytum. Fyrst í samgönguráðuneytinu árið 1995 þá í sjávarútvegsráðuneytinu árið 1999 og loks í fjármálaráðuneytinu. Samhliða þessum störfum hefur hann setið í fjölmörgum nefndum tengdum lands- og sveitastjórnarmálum. Þá sat Ármann á Alþingi á árunum 2007-2009.
Ármann sat í stjórn og framkvæmdastjórn SUS á sínum yngri árum. Hann hefur verið bæjarfulltrúi í Kópavogi frá árinu 1998, átt setu í bæjarráði, verið formaður skipulagsnefndar og skólanefndar Kópavogs. Ármann gegndi stjórnarformennsku í Strætó 2006-2008 og var forseti bæjarstjórnar Kópavogs. Ármann var kjörinn bæjarstjóri í Kópavogi 14. febrúar 2012.