Aftur í úrvalsflokk!

432

Öflugt heilbrigðiskerfi var stolt okkar Íslendingar um árabil og við gátum státað af því að vera með eitt besta heilbrigðiskerfi í heimi.  Margar þjóðir öfunduðu okkur af þessu.    Íslenska heilbrigðiskerfið var eitt af því sem veitti borgurum þessa lands hve mest öryggi.  Þegar einhver varð veikur,  ég tala nú ekki um einhver nákominn, var dásamlegt að lifa í landi þar sem maður gat verið fullviss um að alltaf var til staðar;   færasta fólkið, bestu tækin og besti aðbúnaður sem þekktist. Þetta voru einhver mestu lífsgæði sem hugsast gátu og það var gott að vera Íslendingur með íslenska heilbrigðiskerfið að bakhjarli.

En nú eru því miður breyttir tímar.  Ástæðan er ekki hvað síst röng forgangsröðun stjórnvalda undanfarin fjögur ár sem hafa eytt ógrynni fjárí ESB umsókn sem fæstir vilja, nýja stjórnarskrá frá grunni sem sannarlega er ekki þörf á , eða að taka rangar ákvarðanir við  björgun fallinna fjármálastofanna eins og SpKef.  og fleira mætti tiltaka um ranga forgangsröð.   Heilbrigði og menntun eru grunnstoðir þjóðfélags okkar, um það held ég að flestir Íslendingar séu sammála hvar sem þeir standa í pólitík.  Hins vegar er nú svo komið að búið er að skera heilbrigðiskerfið inn að beini, starfsfólk í heilbrigðisgeiranum hefur tekið á sig stóraukið álag til að reyna halda fyrri gæðum, en auðvitað er það engan veginn hægt.  Í ofaná lag eru það ekki bara tæki Landspítalans sem eru úr sér gengin mörg hver, heldur eru húsnæðismál spítalans líka algerlega óviðunandi.

Á fundi sem samtök lækna héldu nýlega hélt Sigurður Guðmundsson yfirlæknir og prófessor  við læknadeild HÍ afar fróðlegt erindi.  Sigurður er mjög áhyggjufullur yfir stöðu heilbrigðismála í landinu, og vert að taka fullt mark á aðvörunum hans.  Hann segist heldur ekki skilja hvernig stjórnvöld eigi peninga til að bjarga fjármálastofnunum eins og SpKef og Sjóvár, sem sagt sé að hafi kostað 50 milljarða.  Það sé ekki fjarri þeirri upphæð sem áætlað er til að þurfti til að byggja nýjan spítala.  Hvort vegi þyngra öflugt heilbrigðiskerfi eða framtíð SpKef og Sjóvár?  Sigurður bætti við að einn samferðamaður sinn hef sagt hvort ekki væri rétt að breyta skammstöfun Landspítala háskólasjúkrhús úr LSH í LMH, Landspítala myglusjúkrahús, vegna myglunnar sem fundist hefur  í húsnæði Landspítalans  og hefur valdið starfsfólki og öðrum heilsutjóni.  Auðvita var þetta gráglettni, en undirtóninn er grafalvarlegur.

Við Íslendingar eru sem betur fer þannig skapi farnir að við gefumst ekki upp.  Framundan er mikið uppbyggingastarf innan heilbrigðiskerfisins.  Fyrst þarf að efla atvinnulífið til þess að við getum veitt fólkinu okkar þá bestu velferð sem völ er á.  Síðan er að forgangsraða rétt. Við sættum okkur ekki við neitt minna en úrvalsheilbrigðiskerfi og ef Sjálfstæðisflokkurinn á aðild að næstu ríkisstjórn mun það verða sett á oddinn að endurheimta þann gæðastimpil sem íslensku heilbrigðiskerfi ber.

Elín Hirst

Höfundur er í 5. Sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi (Kraganum) í Alþingiskosningunum 27. apríl nk.